Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár kæru lesendur!
Enn og aftur ætla ég að fara að afsaka bloggleysið, það er búið að vera brjálað að gera! Vinna útí eitt og síðan prófin náttúrulega...áramótin og alles...! en ég ætla að koma hér með smá áramótaannál. Ég vil segja ykkur frá hæðum og lægðum í lífi mínu á þessu ári 2007. Ég ætla bara að segja ykkur frá áhugaverðum atvikum og atvikum sem ég man sérstaklega eftir og standa uppúr.
Tja eftir að hafa verið að lesa svona yfir gömul blogg hérna þá sé ég að það gerðist allavegana ekki margt markvert í byrjun árs. Það er nú kannski vert að minnast á það að í febrúar kynntist ég alveg frábærum strák sem mér þykir gífurlega vænt um í dag, það er hann Arnar Sigurgeirsson. Hann er alger gullsál og ég á honum gífurlega margt að þakka. Það held ég að sé besti hluturinn sem ég afrekaði í byrjun árs.
Í ferbrúar fór ég svo á ógeðslega skemmtileg þorrablót í Miðgarði þar sem Villan mín fékk á sig skotin..hehehe
En það var dansað af sér fæturna á þessu blóti og ég efast um að ég hafi átt svona skemmtilegt djamm fyrr en þarna
Um svipað leiti fór ég að syngja Alone með Heart og það átti nú eftir að draga dilk á eftir sér....
Í mars var síðan söngkeppni NFFA þar sem við Ásta Marý kepptum með lagið Alone með Heart. Til þess að gera langa sögu stutta þá unnum við þá keppni á einhvern óskiljanlegan hátt
það kom okkur ekkert smá mikið á óvart! jiminn eini, ég held ég hafi aldrei verið jafn hissa á ævi minni! Við vorum löngu búin að raða í efstu 3 sætin og þar vorum við sko alls ekki
En vegna þess að við sigruðum þessa keppni þá fórum við fyrir hönd skólans í Söngkeppni Framhaldsskólanna en hún var haldin á Akureyri í apríl.
Dísus kræst ég held ég hafi aldrei upplifað aðra eins keyrslu og þá! Við vorum að allan laugardaginn í rennsli, generalprufu, sminki og hári og bara..þetta var algerlega bilun! en guð minn góður hvað þetta var ótrúlega skemmtilegt!
Reyndar gekk okkur ekkert sérlega vel á lokakvöldinu..hvort það hafi verið stress, þreyta eða annað veit ég ekki. Ég veit að allavegana það að við víxluðum mækunum, hún fékk minn og ég hennar, hafi haft einhver áhrif en auðvitað ekki bara
En það sem var mér minnistæðast eftir þessa góðu ferð var allt fólkið sem kom og studdi okkur, sem öskraði þegar við gengum á svið, sem óskaði okkur til hamingju með góða frammistöðu...allt þetta fólk sem kom og studdi okkur á þvílíkt hrós skilið og ég var/er ekkert smá ánægð með það! Annað sem var mér mjög minnistætt var allt fólkið sem ég kynntist þarna, allir tónlistarmennirnir sem ég kynntist...þar má helst nefna Arnar úr FÁ (2.sæti) en þar er alveg þvílíkur söngvari á ferð og góður lagahöfundur líka! Síðan kynntist ég líka honum Mána þarna en hann spilar í hljómsveit með Bjarka dude og co..en þau tóku lagið eftir að keppendur höfðu lokið sér af, vegna þess að Helga, söngkonan, vann keppnina í fyrra. Svo fórum við í partý eftir keppnina með hljómsveitinni hennar Helgu og var það alveg sjúklega gaman, síðan var bara ball og við fórum þreyttar heim með flugi daginn eftir. Algerlega ógleymanleg helgi og ég væri svo til í að gera eitthvað svipað á þessu ári
þann 27.apríl keppti ég síðan í SexTraktor en það er árleg söngkeppni sem er haldin í sveitinni (gamla Borgarfjarðarædolið fyrir þá sem vita). Sigurinn féll mín megin þar eftir nauma kosningu og afar skemmtilegt kvöld og fékk ég stúdíótíma í verðlaun
sem ég nýtti mér fyrir stuttu og tók upp lagið Foolish games. Það er að vísu bara Demo upptaka en ég er samt þokkalega sátt við það
í maí tóku prófin síðan við og söngprófið mitt. Dísus kræst það tók sko á taugarnar! Ég fór í grunnstig í klassískum söng (fyrstu 3 stigin í gamla kerfinu) og náði því nú alveg en kannski ekki með einhverja glimrandi einkunn, mig minnir að ég hafi verið í kringum 8. En fyrst þetta reddaðist þá skal ég þegja
Litli bróðir fermdist síðan líka í maí, hann var ótrúlega sætur og veislan var afar fín
Þetta sumarið var eitt það erfiðasta og skrítnasta sem ég hef nokkurn tíman upplifað. Ég ákvað að vinna í Hyrnunni þetta sumarið, þriðja sumarið í röð, ásamt Ester. Núna vorum við á ógeðslega þægilegum vöktum, unnum 8-4 alla virka daga og aðra hvora helgi. En við vorum s.s. að vinna 11 daga í röð, 3 daga frí, 11 daga í röð, 3 daga frí..alltaf svona...síðan fór ég líka að þjálfa fótbolta í sumar til þess að geta klára KSÍ III. Ég og Ester vorum með 2 flokka á Hvanneyri yfir sumarið og svo leysti ég pabba aðeins af líka. Þannig að samtals var ég að vinna 212klst mánaðarvinnu.
8.júní var/er dagurinn sem breytti lífi mínu algerlega en það er dagurinn sem pabbi greindist með krabbamein. Ég ætla ekkert að skrifa neitt gífurlega mikið um þetta hér..en staðan í dag er sú að meinið er komin í beinin hjá pabba og við erum öll að reyna eins og við getum að standa saman og vera dugleg og sterk. Ég áttaði mig bara fyrir stuttu á því hversu mikið þetta hefur haft áhrif á mig, sérstaklega strax eftir að þetta gerðist. Ég varð uppstökk, neikvæð og ég sá alltaf bara það versta útúr öllu. Þegar ég fattaði þetta breytti ég aðeins til og hlutirnir urðu strax miklu betri.
Síðust helgina í júní fór ég í frábæra bústaðarferð með Gísla, Bjarka og Hirti og svo fleiri aðilum sem komu og fóru en við gistum 2 nætur. Þetta var alveg æðislega skemmtileg og vitlaus ferð! heh
það fyndnasta var án efa þegar hann Gísli tók sig til og fór í bikinítoppinn minn og ætlaði að hoppa ofan í heita pottinn en mistókst það eitthvað...rann til á sleipum pallinum og lenti klofvega á barmi pottsins og datt þaðan á gólfið..þar lá hann síðan í hláturskasti og við öll hin einhversstaðar þarna líka...
þetta var án efa það fyndnasta á þessu ári, og það besta var að þetta náðist á vídjó en það eyddist á einhvern óskiljanlegan hátt..!
fúlífúl...síðan komu strákarnir þrír mér líka skemmtilega á óvart þegar við vorum að taka til og ganga frá...þeir voru svo ógeðslega duglegir að þrífa og taka til, ég átti bara ekki orð
í júlí fór ég síðan í ferð á Vestfirðina með fjölskyldunni minni, það var alveg ótrúlega næs ferð í alla staði fyrir utan kannski það að ég var semí lasin þarna
en ég naut mín samt alveg til botns í náttúrunni þarna..ég fór út með kíkji og sat alveg heillengi á einhverjum hól..bara að skoða fuglana og hlusta á náttúruna
hallærislegt og væmið..æ nó
en svona er ég bara..þetta var æðislegt..ég fékk alveg einhvern svona aukakraft við þetta
í ágúst flutti ég síðan á heimavistina með henni Erlu
alveg ótrúlega fínt að vera þar maður, ekkert nema kósíheit og allir svo fínir og góðir þar
Skólinn fór á fullt og vinnan og söngurinn og alles maður...sko brjálað að gera..
ég byrjaði í hljómsveit og hætti í hljómsveit...eftir það hef ég síðan aðeins verið að syngja með frábærum strákum sem eru í hljómsveitinni Öryrkjarnir..planið er að fara í bústað síðustu helgina í janúar að taka upp og ég hlakka sko mikið til þeirrar vitleysunnar
síðan lenti ég í því að það keyrði á mig vörubíll og bíllinn minn var úrskurðaður ónýtur (R.I.P. Beljan
). Ég var sko í bullandi rétti svo þetta var í lagi..ég og Erla sluppum alveg furðuvel miðað við aðstæður og svona...en ég keypti mér bara nýjan bíl, Prins Lancelot, gífurlega fallegur dökkblár Lancer, 98 árgerð og eyðir litlu sem engu
ekkert nema ánægð með þann kagga
´
í október tók ég líka síðustu þjálfaragráðuna mína fyrir UEFA-B prófið, KSÍ IV. Þar var ég eina konan með rúmlega 30 karlmönnum! þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig það var komið fram við mig..enda kvartaði ég við KSÍ! þetta var ógeðslegt og skelfilegt..meiri karlrembusvínin...!!
í október fórum við fjölskyldan líka í frábæra ferð til Danmerkur
vorum þar í íbúðinni hennar laufeyjar sem er alveg geðsjúklega flott!! alveg bara ótrúleg (3baðherbergi, takk fyrir takk!) Við brölluðum nú ýmislegt skemmtilegt þarna
Fórum í BonBon land, á Strikið, oft í Tívolíið (bjuggum eiginlega við hliðina á því
), keyrðum til Næstved, Slagelse og Sorö og gerðum margt fleira skemmtilegt
þetta var allavegana frábær tími, síðan var náttúrulega verslað eins og við ættum lífið að leysa
Lífið gekk bara sinn vanagang í nóvember og desember, brjálað að gera eins og venjulega! Desember fór mest í prófundirbúning, vinnu, bakstur og söng...ekkert nema klikkun en afar skemmtilegt líka
svo varð ég náttúrulega 18 ára gömul 25 desember
sem var ekkert nema rosalega skemmtilegt!
Á aðfangadag upplifðum við það að það var heita-vatnslaust í sveitinni svo við þurftum að bruna í Borgarnes til þess að komast í jólabaðið
Annars hafa þessi jól verið ein sú bestu frá upphafi..!
Á þessu ári hef ég lært alveg gífurlega mikið um mig og aðra. Ég lærði það að taka aldrei neinu sem sjálfsögðum hlut og læra að meta allt betur. Læra að meta tímann betur, læra að meta snjófuglana, það að geta farið í vinnu, gengið í skóla og bara allt, öll þessi veraldlegu gæði sem við tökum svo oft sem sjálfsögðum hlut. Tíminn er nefninlega ekkert endalaus þó svo að við virðumst oft halda það. Veraldleg gæði koma ekki að sjálfu sér.
Ég lærði líka það að fjölskyldan er það allra allra mikilvægasta sem þú átt. Sumir vinir mínir og kunningjar hneyksluðust á því að ég vildi kannski vera heima um helgar en að vera að djamma einhversstaðar í sumar...sko án þess að vera með leiðindi og svoleiðis þá er fjölskyldan betri vinskapur en allir þeir vinir sem ég á..þau hafa þekkt mig allt mitt líf. Þó svo að ég elski vini mína og að þeir séu mér mikilvægir geta þeir aldrei komið í staðin fyrir fjölskylduna mína...aldrei aldrei!
Til að enda þennan ógeðslega langa annál minn ætla ég að nefna nokkur nöfn vina minna sem hafa haft gífurlega áhrif á líf mitt þetta árið sem nú er liðið og ég þakka þeim fyrir allt saman..(þetta er ekki í sérstakri röð
Arnar Sigurgeirsson
Magnús Ingimarsson
Dagur Arngrímsson
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
Guðrún Ósk Ámundadóttir
Anna Heiða Baldursdóttir
Eiríkur Björnsson
Ester Harpa Vignisdóttir
Búi Hrannar Búason
Héðinn Eyjólfsson
Arnar Ásbjörnsson
Kamil Józef Damrath
Þovaldur Ingi Árnason
Hrannar Már Ómarsson
Aðalheiður Kristjánsdóttir
Hjálmur Örn Árnason
Björg Guðlaugsdóttir
Bjarki Þór Aðalsteinsson
Áslaug Katrín Hálfdánardóttir
Guðmundur Garðar Brynjólfsson
Sigurður Páll Jósteinsson
Ásmundur Jónsson
Hjörtur B. Björnsson
Lára Guðríður Guðgeirsdóttir
Ásta Marý Stefánsdóttir
Andrea Rós Kristjánsdóttir
Guðmundur Snorri Sigfússon
Jónmundur Magnús Guðmundsson
Margrét Alda Magnúsdóttir
Trausti Eiríksson
Ólafur Helgi Halldórsson
Karítas Gissuradóttir
Erla Guðmundsdóttir
Aðalheiður Karlotta Guðlaugsdóttir
Grétar Bragi Hallgrímsson
Stefanía Sunna Róbertsdóttir
Sigfús Helgi Kristinsson
Þráinn Ásbjörnsson
Vilborg Lárusdóttir
Rósa María Sigurgeirsdóttir
Hólmfríður Magnúsdóttir
Ester Björk Magnúsdóttir
Kristrún Inga Valdimarsdóttir
Einar Örn Guðnason
Haukur Páll Jónsson
og fleiri og fleiri sem ég er áreiðanlega að gleyma
En nú ætla ég að fara að enda þetta...ég man ekki eftir fleiru sem ég ætla að segja hér..ég vona að nýja árið veiti ykkur öllum gæfu, gleði og hugarró...endum þetta á frasa sem lýsir þessu ári fullkomlega..
Someday everything will make perfect sense. So for now, laugh at the confusions, smile through the tears, and keep reminding yourself that everything happens for a reason.
þangað til næst..
Álfheiður SHe
P.S. Mér þætti vænt um að fá einhver komment á þetta..þetta tók mig sko laaaangan tíma!